Í þessu vali horfum við á ýmsar kvikmyndir þar sem vísindin koma við sögu. Gæti það sem sýnt er í kvikmyndinni gerst í alvörunni? Er það raunverulegt? Skoðum fræðina á bak við myndirnar, sannleikann og margt fleira! Þessi valáfangi hentar þeim sem hafa gaman af vísindakvikmyndum og langar að læra af þeim með skemmtilegum hætti.
Markmið eru að nemendur:
- þjálfi og beiti gagnrýnni hugsun
- auki færni sína í umræðum og tjáningu eigin skoðana
- geti rætt um ólík viðfangsefni frá mismunandi sjónarhornum og rökstutt með dæmum
- geri sér grein fyrir hugmyndum um ýmis náttúruleg fyrirbæri.
Námsmat: Unnið er út frá hæfniviðmiðum í Aðalnámsskrá fyrir náttúrufræði.
