Smáréttir úr ýmsum áttum; krydd og kúltúr

My Fav (0)
Please login to bookmark Close

Í þessu vali munu nemendur fá innsýn í matarmenningu nokkurra landa og taka virkan þátt í að velja hvaða lönd verða fyrir valinu, í samráði við kennara.

Kennari kynnir matarmenning landanna áður en farið verður í verklega kennslu. Eftir að ferlið hefur verið útskýrt munu nemendur vinna sjálfstætt að verkefnum sem sett eru fyrir.

Markmiðin eru að nemendur:

■ fái leiðsögn í matreiðslu og kynnist hinum ýmsu réttum og hráefnum

■ öðlist færni í að beita fjölbreyttum matreiðsluaðferðum

■ tileinki sér hreinlæti í verki við heimilisstörfin

■ tileinki sér góð vinnubrögð og rétta líkamsbeitingu

■ þjálfist í að vinna sjálfstætt eftir uppskrift

■ geri sér grein fyrir því hvers vegna mikilvægt er að þvo upp samkvæmt ströngustu hreinlætiskröfum

Gerð er krafa um að nemendur geti meðtekið og farið eftir fyrirmælum, bæði munnlegum og skriflegum. Einnig að nemendur vinni skipulega, haldi vinnusvæði hreinlegu, gangi vel frá í lokin og síðast en ekki síst haldi ró sinni og sýni samstarfsfólki virðingu og vinsemd.

Námsmat: Miðað er við matsmarkmið í Aðalnámsskrá.