Mósaíklist – litur, mynstur og skapandi flísaveröld

My Fav (0)
Please login to bookmark Close

Nemendur læra hefðbundnar aðferðir í mósaíklist og fá tækifæri til að prófa sig áfram með ólík efni, áferðir og mynstur.

Við byrjum á því að kanna fjölbreytta mósaíklist og sækja innblástur í stíl og aðferðir listamanna. Nemendur vinna hugmyndir sínar með skissum, lita- og efnis tilraunum og hanna og fullvinna mósaíkverk. Áhersla er lögð á skapandi ferli, vandvirkni og persónulega nálgun.

Í kúrsinum munu þátttakendur:

● Kynnast sögu og ólíkum stílum mósaíklistar

● Læra að skissa og þróa eigin hönnun

● Klippa og vinna með flísar, gler og endurunnið efni

● Fullvinna sitt eigið mósaíkverk