Í þessari skapandi valgrein fá nemendur að hanna og smíða eigin leikföng – frá hugmynd að tilbúinni afurð. Við skoðum hvað leikföng þurfa að uppfylla (öryggi, virkni, skemmtun), lærum að teikna, móta, prófa og framleiða. Nemendur nota fjölbreytt efni og tól, og fá að kynnast hugmyndavinnu, einfaldri vöruhönnun og jafnvel prótótýpu-smíði.
Hæfniviðmið úr aðalnámskrá sem styðja greinina:
- Hönnun og smíði (8.–10. bekkur):
Nemandi getur hannað og smíðað hluti með áherslu á virkni, fagurfræði og notagildi, með viðeigandi efnum og aðferðum. - Upplýsingamennt (10. bekkur):
Nemandi getur nýtt stafrænar lausnir og verkfæri við skapandi verkefni og hönnun. - Náttúrufræði (8.–10. bekkur):
Nemandi getur tengt hönnun og lausn vandamála við eðlisfræðileg hugtök og raunveruleg notagildi
