Leðurútskurður

My Fav (0)
Please login to bookmark Close

Í leðurútskurði kynnast nemendur handverki sem byggir á nákvæmni, þolinmæði og sköpun. Við vinnum með ekta leður og lærum að skera út, móta, stimpla og lita. Nemendur hanna eigin mynstur, búa til nytjahluti eins og armbönd, lyklakippur eða bókakápur – og læra að nota hefðbundin verkfæri á öruggan og ábyrgan hátt.

  Hönnun og smíði (8.–10. bekkur):
Nemandi getur unnið með hefðbundin og nýstárleg efni á skapandi og öruggan hátt.

  Myndmennt (8.–10. bekkur):
Nemandi getur hannað og unnið myndrænt efni með fjölbreyttum aðferðum, miðlum og áherslu á fagurfræði.

  Lífsleikni / Námshættir:
Nemandi sýnir þrautseigju, sjálfstæði og öguð vinnubrögð við skapandi verkefni.