Laserskeri

My Fav (0)
Please login to bookmark Close

Í boði fyrir 8.-10 bekk.

Valið er kennt á vorönn í 80 mínútur í senn.

Nemendur vinna að verkefnum sem skorin eru út í Laserskera. Þeir geta valið um að teikna uppsínar eigin hugmyndir eða nota snið af netinu. Þá annað hvort þau snið sem Glowforg pro er meðá sínum snærum eða fundið á öðrum síðum.

Lögð er áhersla á hugmyndavinnu, vandað handverk og sjálfstæð vinnubrögð.

Hæfniviðmið eru að nemandi geti:

▪ valið aðferðir efni og verkfæri við hæfi og sýnt rétta og ábyrga notkun verkfæra.

▪ útskýrt hugmyndir sínar fríhendis- og með grunnteikningu.

▪ unnið sjálfstætt eftir verkáætlun og vinnuteikningu.

▪ hannað verkefni út frá efni, fagurfræði, tækni, umhverfi, notkun og ending.

▪ framkvæmt flóknari samtengingar, s.s. samlímingu, töppun, neglingu og skrúfun eftir þvísem við á.

▪ beitt viðeigandi vinnustellingum og notað réttan hlífðarbúnað og fjallað um vinnuvernd.

▪ Námsmat samkvæmt hæfniviðmiðum í Hönnun og smíði fyrir 8. – 10. bekk.