Hefur þú farið til Ítalíu eða kannski langar þig að fara og þú vilt spjalla við fólkið þar? Í þessu nýju vali gefst tækifæri til að læra grunnþekkingu í ítölsku svo sem síðir og hefðir landsins með ítölskum kennara! Í áfanganum er farið yfir grunnþætti ítalska tungumálsins til að geta bjargað sér í daglegu lífi. Kennslan mun fara fram með fjölbreyttum hætti með tillit til áhuga og þarfa nemenda. Engrar kunnáttu er krafist, bara áhugi og vilji til að taka þátt.
Markmið eru að nemendur:
- Læri grunnatriði í ítalska tungumálinu.
- Fái þjálfun í hlustun, tali og ritun.
- Geti tjáð með einföldum hætti um hversdagsleg viðfangsefni.
- Öðlist þekkingu um menningu og land.
Námsmat: Unnið er út frá hæfniviðmiðum í Aðalnámsskrá.