Hundaval

My Fav (0)
ClosePlease login

Í boði fyrir 8.-10 bekk. Áfanginn er ætlaður nemendum sem hafa áhuga á að eiga hund sem gæludýr eða eiga hund sem gæludýr. Markmiðið með valáfanganum er að nemendur læri að umgangast hunda og viti hvað beri helst að varast varðandi hundahald. Valáfanginn er kenndur eina kennslustund í viku og spannar eina önn. Kennslustundirnar fara að miklu leyti fram utandyra þar sem farið er með hundana í göngutúra um hverfið en með þeim hætti læra bæði nemendur og hundar að umgangast stóran hóp af hundum. Í kennslustundum innandyra er farið yfir umhirðu gæludýra, almenna fræðslu um eiginleika hunda, fjallað um þróun og sögu hundategunda í tímans rás, tengsl manns og hunds, margvísleg hlutverk hunda í samfélögum manna og fleira þess háttar.