Fréttabréf náttúruvísinda

My Fav (0)
Please login to bookmark Close

Þessi áfangi er ætlaður öllum nemendum sem hafa áhuga á og eru forvitin um vísindi. Þið vinnið með mismunandi þemu yfir önnina og búið til fréttir um það efni. Tekið er mark á ykkar óskum og áhugamálum. Hópurinn mun búa til fréttabréf sem mun vera birt. Engrar kunnáttu er krafist bara áhugi og vilji til að taka þátt. 

Markmið eru: 

  • Að þjálfa vísindalæsi nemenda (að lesa, skilja og útskýra upplýsingar).
  • Að nemendur beiti skapandi og gagnrýnni hugsun í vinnu sinni.
  • Að nemendur öðlist hæfni í að vinna sjálfstætt og skipulega með ólík efni, m.a. út frá eigin áhugasviði.
  • Að nemendur læri að setja upp texta og myndir og kynnist vinnu sinni í útgáfu.

Námsmat: Unnið er út frá hæfniviðmiðum í Aðalnámsskrá.