Extra dansk er fyrir þá nemendur sem hafa mikinn áhuga á dönsku og vilja fræðast meira um landið, menningu þess og tungumálið. Farið verður í annað námsefni en í venjulegum dönsku tímum og lögð áhersla á allt sem tengist Danmörku. Valgreinin er allt árið 60 mín í viku. Valið gæti endað á því að fara í ferð til Danmerkur í lok skólaársins.