Bakstursval

My Fav (1)
ClosePlease login

Nemendur fá þjálfun í að baka brauð og kökur. Þeir vinna sjálfstætt eftir að kennari hefur farið yfir vinnuferlið. Mikið er lagt upp úr góðu vinnulagi og að frágangur sé til fyrirmyndar. Umræður um manneldismarkmið, hagsýni og umhverfisvernd fléttast inn í vinnuferlið. Allir tímar eru verklegir. Markmiðin eru að nemendur: • fái tilsögn við bakstur á hinum ýmsu tegundum af brauðmeti og kökum • öðlist færni í að beita fjölbreyttum bakstursaðferðum • tileinki sér hreinlæti í verki við heimilisstörfin • tileinki sér góð vinnubrögð og rétta líkamsbeitingu • þjálfist í að vinna sjálfstætt eftir uppskrift • geri sér grein fyrir því hvers vegna mikilvægt er að þvo upp samkvæmt ströngustu hreinlætiskröfum Gerð er krafa um að nemendur geti meðtekið og farið eftir fyrirmælum, bæði munnlegum og skriflegum. Einnig að nemendur vinni skipulega, haldi vinnusvæði hreinlegu, gangi vel frá í lokin og síðast en ekki síst haldi ró sinni og sýni samstarfsfólki virðingu og vinsemd. Námsmat: Unnið er út frá hæfniviðmiðum í aðalnámskrá grunnskóla.