Vísindabíó

My Fav (0)
Please login to bookmark Close

Í þessu vali horfum við á ýmsar kvikmyndir þar sem vísindin koma við sögu. Gæti það sem sýnt er í kvikmyndinni gerst í alvörunni? Er það raunverulegt? Skoðum fræðina á bak við myndirnar, sannleikann og margt fleira! Þessi valáfangi hentar þeim sem hafa gaman af vísindakvikmyndum og langar að læra af þeim með skemmtilegum hætti.

Markmið eru að nemendur:

  • þjálfi og beiti gagnrýnni hugsun
  • auki færni sína í umræðum og tjáningu eigin skoðana
  • geti rætt um ólík viðfangsefni frá mismunandi sjónarhornum og rökstutt með dæmum
  • geri sér grein fyrir hugmyndum um ýmis náttúruleg fyrirbæri.

Námsmat: Unnið er út frá hæfniviðmiðum í Aðalnámsskrá fyrir náttúrufræði.