Ertu að æfa knattspyrnu og langar að fá tækifæri til að bæta þig enn frekar í skólanum? Afreksþjálfun Fjölnis er frábært tækifæri fyrir nemendur á unglingastigi sem vilja bæta leikni sína og öðlast dýpri skilning á því sem þarf til að ná árangri í íþróttum.
Í valinu fá nemendur tækifæri til að taka þátt í skipulögðum knattspyrnuæfingum undir stjórn reyndra þjálfara í frábærri aðstöðu Fjölnis í Egilshöll. Þjálfunin skiptist í tvennt: annars vegar er unnið á vellinum með áherslu á tæknilega og leiklega færni, og hins vegar er farið yfir mikilvæga þætti eins og næringu, svefn, hvíld og andlega heilsu sem styðja við árangur í íþróttum.
Valið hentar þeim sem æfa knattspyrnu með félagi og vilja fá aukaæfingu við sitt hæfi innan skólatíma.
Hæfniviðmið úr aðalnámskra sem styðja greinina:
Íþróttir og hreyfing – hæfniviðmið 8.–10. bekkur:
„Nemandi fær þjálfun við hæfi og fær stuðning við að setja sér markmið og meta eigin framfarir.“
Lífsleikni – hæfniviðmið 8.–10. bekkur:
„Nemandi gerir sér grein fyrir mikilvægi svefns, hvíldar og heilbrigðs lífernis fyrir líkamlega og andlega heilsu.“
Íþróttir og hreyfing – hæfniviðmið 8.–10. bekkur:
„Nemandi kynnist mikilvægi samstarfs og jákvæðs hugarfars í íþróttum og öðrum hreyfivirkni.“
