Í valinu kafa nemendur ofan í heim popplistamanna á borð við Andy Warhol, Roy Lichtenstein, Yayoi Kusama og Erró.
Við heimsækjum sýningu Erró í Hafnarhúsinu þar sem nemendur fá innsýn inn í stíl, tækni og áhrif listamannsins. Nemendur kynnast fjölbreyttum listamönnum sem hafa mótað popplistina og vinna verk að eigin vali sem byggir á stíl eða hugmyndum popplistamanns.
Í valinu munu þátttakendur:
● Læra um helstu einkenni og sögu popplistar
● Uppgötva ólíka popplistamenn
● Fara á sýningu og ræða verkin
● Þróa eigin verk í anda popplistar
