Jólaval 

My Fav (0)
Please login to bookmark Close

Nemendur vinna verkefni að eigin vali þar sem ljósasería er notuð.

Lögð er áhersla á hugmyndavinnu, vandað handverk og sjálfstæð vinnubrögð.

Hæfniviðmið eru að nemandi geti:

  • valið aðferðir efni og verkfæri við hæfi og sýnt rétta og ábyrga notkun verkfæra
  • útskýrt hugmyndir sínar fríhendis- og með grunnteikningu
  • unnið sjálfstætt eftir verkáætlun og vinnuteikningu
  • beitt viðeigandi vinnustellingum og notað réttan hlífðarbúnað og fjallað um vinnuvernd

Námsmat samkvæmt sameiginlegum hæfniviðmiðum í list- og verkgreinum fyrir  8. – 10. bekk.